Solo Performance Festival
Leikur einn á Suðureyri
Kómedíuleikhúsið Hafa samband English
Dagskrá Hátíðin Fréttir
mánudagurinn 5. ágúst 2013 | Elfar Logi Hannesson

Vesturport frumsýnir á afmælisári Act alone

Act alone fagnar tíu ára afmæli í ár - Eins og vænta má er því dagskrá ársins sérlega einstök og einleikin. 

Alls verður boðið uppá 18 viðburði á hátíðinni og rétt er að taka fram að aðgangur að öllum viðburðum er ókeypis einsog verið hefur frá upphafi.

Hátíðin verður haldin aðra helgina í ágúst dagana 8. – 11. ágúst í sjávarþorpinu Suðureyri.

Leiksýningar eru ávallt í fyrirrúmi á Act alone og svo verður einnig í ár. Hinn margverðlaunaði leikhópur Vesturport frumsýnir nýjan íslenskan einleik á afmælisári Act alone. Leikurinn nefnist Tribbjút eftir og með Víkingi Kristjánssyni í aðalhlutverki.

Af öðrum leiksýningum ársins má nefna einleikina Kameljón eftir Margréti Örnólfsdóttur, Hinn fullkomna jafningja eftir Felix Bergsson og gamanleikinn vinsæla How to become Icelandic in 60 min. með Bjarna Hauki í aðalhlutverki.

Uppistand verður einnig á dagskrá Act alone og þar verður boðið uppá einn þann vinsælasta í þeirri grein síðustu áratugi engan annan en Jóhannes Kristjánsson.

Tónlistin hefur ávallt verið stór hluti af Act alone og í ár verða tveir kóngar fyrirferðamestir. Fyrst ber að nefna vestfirska listamanninn og krúttið Mugison sem hefur sannarlega heillað landann með sínum einstöku tónleikum síðastliðin ár. Hinn kappinn sem mætir til leiks er sjálfur Bjartmar Guðlaugsson. Margt fleira verður í boði má þar nefna töfranámsskeið og sýningu með töframeistara Einari Mikael.

Það er sannarlega ástæða til að fara að hlakka til Act alone í ár og full ástæða til að taka helgina frá. Þetta verður alveg einstök helgi. 

« Til baka