Act alone 2018
Fimmtudagur 9. ágúst
Fiskismakk og upphafsstef Act alone
Kl.18.45 við félagsheimilið
Í boði: Íslandssaga
Það er mikilvægt að vera vel mettur áður en lista er notið. Því hefjum við vora hátíð með einstakri fiskiveislu að hætti einleikjaþorpsins.
Pétur Jesú
Tónleikar og gamanmál
Kl.19.30 í félagsheimilinu
Tónlistartími: 50 mín
Í boði: Fisherman
Pétur Örn, oft kallaður Pétur Jesú hefur helst verið þekktur fyrir að vera í hljómsveitunum Buff og Dúndurfréttum auk þess að vera einn afkastamesti bakraddasöngvari í hinni síelskuðu Júróvisjónkeppni. Hann hefur þó í auknum mæli verið að koma einn fram með kassagítarinn á alls kyns viðburðum og ætlar hann í þetta sinn að blanda saman þekktum lögum sem gaman er að syngja með og kannski einu og einu frumsömdu lagi. Rólegheitastemning og stuð í bland þannig að allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.
Ljóðaslamm
Kl.21.00 í félagsheimilinu
Sýningartími: 30 mín
Í boði: Jakob Valgeir
Hraðólgandi, seigfljótandi, hvítfryssandi ljóðaslamm!
Hvað er slamm eiginlega?
Blanda af ljóðaflutningi og leiklist, nánd, ofsa, kátínu og depurð flutt á einstæðan hátt af Íslandsmeistara þessa stíls.
En hver er maðurinn?
Hversu margar grímur er hægt að sýna áður en persónan undir niðri tapast endanlega? Ef hún var þá einhverntímann til.
Franziska Günther
Tónleikar
Kl. 21.45 í félagsheimilinu
Tónlistartími: 50 mín
Í boði: Arctic Fish
Franziska Günther er söngvari og söngvaskáld, sem býr í Berlín, Þýskalandi. Hún fangar áhorfendur sína með heiðarlegri rödd sinni, einstökum textum, sögum og líflegum gítarhljóðum. Skömmu fyrir þrítugs afmælið sendi hún frá sér hljómplötu með frumsömdu efni á ensku. Hvar röddin og gítarspil hennar fá að njóta sín. Franziska vinnur nú að nýrri hljómplötu.
Flytjandi: Franziska Günther
Fyndnasti maður Vestfjarða
Uppistand
Kl. 22.50
Sýningartími: 10 mín
Í boði: Einarshúsið
Hin bráðfyndna keppni Fyndnasti maður Vestfjarða var haldin í Einarshúsi Bolungavík. Sigurvegari var Svava Traustadóttir og nú er hún mætt á Actið.
Musterið er mætt!
Uppistand
Kl. 23.00 í félagsheimilinu
Sýningartími: 30 mín
Í boði: Hamraborg
Jón Hlöðver Böðvarsson aka Nonni Bö er mættur í sveitina!
Nonni leitar að vestfirskri stúlku sem vann með honum á Pizza67 árið 1998. Hún var með spékoppa, í grænum gallabuxum og með lokk í tungunni. Þessi skvísa hefur aldrei farið úr huga Nonna þó hún hafi horfið úr lífi hans eftir nokkra daga. Hann er nú kominn vestur að biðja heimamenn um hjálp að finna draum dísa sinna.
p.s. Hann mun gista í gestaherberginu hjá föðursystur sinni á Túngötunni á Suðureyri. Kvenkynsgestir velkomnir.
Höfundur & leikari: Alexía Björg Jóhannesdóttir
Fragility White & Blue
Myndbandleikur
Kl.23.45 við félagsheimilið
Sýningartími:
Í boði: Íslandsbanki
Hvernig getur þú fært undirvitundarskynjun að yfirborði til að búa til metamorphoses í huglægu umhverfi þínu?
Ég skapa andrúmsloft heima í gegnum vinnuferli sem ég nefni leiðandi uppljómun. Mitt eigið innsæi virkar sem verkfæri til rannsókna og hliðstæðu sem skapandi ferli. Líkami minn þjónar sem hluti af landslaginu þar sem ég rannsaka tengsl landslags og mannslíkamans.
Ég endurheimti náttúruna í mönnum. Ég endurheimti manninn sem náttúruna. Ég endurheimti mannslíkamann sem hluta af öllum náttúruhringum.
Listamaður: Laura Durban
Tónlist: Francesco Fabris
Föstudagur 10. ágúst
Compassion Planet
Myndlistarsýning
Kl.17.00 gangurinn í sundlaugarparadís Suðureyrar
Í boði: Málningarbúðin Ísafirði
Því er spáð er að ísbjörninn gæti verið útdauður árið 2100 og að tveir þriðju megi þegar vera útdauðir árið 2050. Allt vegna hlýnun jarðar. Ísbjörninn er að missa sitt búsvæði vegna daglegs lífs okkar:
Langar heitar sturtur eftir stressandi dag. Drekka kaffi. Vökva plönturnar. Endurvinna (eða ekki). Hafa bílinn stöðugt í gangi, svo að rassinum þínum verði ekki of kalt eftir að þú hefur verslað í Costco. Hleðsla á Samsung tölvuna og iPhone. Ef ég væri ísbjörn, væri ég þá að spá í þessum hlutum?
Listamaður: Sólveig Edda Vilhjálmsdóttir
Pain Tapestry
Leiksýning á ensku
Kl.19.00 í félagsheimilinu
Sýningartími: 45 mín
Í boði: Bolungarvík
Hann keyrir gamlan Chrysler yfir eyðimörkina
til að afhenda dularfullan pakka.
Næturfundir á vegamóteli
og pakkinn sjálfur
fá hann til að draga í efa
efnið sem veruleiki hans er spunninn úr.
Dökkur húmor, heimur töfrum hulinn og óvæntar söguflettur er baksvið The Pain Tapestry, skrifað af ensk-armenska skáldinu Baret Magarian. Baret hefur skrifað sem blaðamaður fyrir The Times, The Guardian, The Independent, The Observer og skáldskap í World Literature today. Hans fyrsta skáldsaga The Fabrications hefur fengið frábæra dóma í Bandaríkjunum og á Bretlandi.
Leikari: Páll Sigþór Pálsson
Höfundur: Baret Magarian
Lýsing/Hljóð/Mynd: Haukur Valdimar Pálsson
Leikstjórn: Rúnar Guðbrandsson
FUBAR
Danssýning
Kl. 20.30 í félagsheimilinu
Sýningartími: 75 mín
Í boði: Súðavík
FUBAR er dansverk eftir Siggu Soffíu unnið í samstarfi við Jónas Sen tónlistarmann, Helga Má Kristinsson myndlistarmann og Hildi Yeoman tískuhönnuð. Sýningin er blanda af uppistandi, dansi, söng og tónlist.
FUBAR fékk frábærar viðtökur gagnrýnenda um allt land auk tveggja tilnefninga til Grímuverðlaunanna 2017: Jónas Sen fyrir tónlist ársins og Sigga Soffía sem dansari ársins.
Dansari/Höfundur: Sigga Soffía
Tónlist: Jónas Sen
Helga Möller
Tónleikar
Kl. 22.00 í félagsheimilinu
Tónlistartími: 55 mín
Í boði: Hótel Ísafjörður
Um leið og við heyrum nafnið Helga Möller förum við strax Í hátíðarskap og svo tekur bara við Dans, dans, dans. Söngdífan hefur svo sannlega og það fyrir löngu sungið sig inní hjörtu landsmanna. Ekki bara það heldur komið þeim í stuð með slögurum á borð við Í útilegu, Ljúfa líf, Þú og ég, Ort í sandinn að ógleymdum sjálfum Gleðibankanum. Það er ekki bara næsta víst heldur öruggt að það verður einstök diskóstemning hér í kveld.
Flytjandi: Helga Möller
Undirleikari: Ásgeir Ásgeirsson
Jón Jónsson
Tónleikar
Kl. 23.15 í félagsheimilinu
Tónlistartími: 55 mín
Í boði: Múr og stimplun
Þeir eru margir gleðigjafarnir. Einn af þeim er án efa popparinn og fyrrum knattspyrnu peyinn Jón Ragnar Jónsson. Eða bara Jón Jónsson einsog við þekkjum hann. Þó ungur að árum sé, er lagalistinn þegar orðinn langur og inniheldur hvern smellinn á fætur öðrum. Alltof langt mál að telja það allt upp hér nægir og að nefna Ljúft að vera til, Gefðu mér allt sem þú átt, Feel for you, Lost, Sooner or later. Þetta veður bara fjör.
Flytjandi: Jón Jónsson
Þegar hann sefur er hann að vinna
Einþáttungur
Kl. 24.25 í félagsheimilinu
Sýningartími: 20 mín
Í boði: Hótel Ísafjörður
Verkið fjallar um mann sem þjónar heiminum í svefni og þá sem þjóna þeim sem sofa í vöku.
Leikari/flutningur: Ragnar Ísleifur Bragason
Höfundur: Ingibjörg Magnadóttir
Ljósmynd: Saga Sigurðardóttir
Laugardagur 11. ágúst
Vera og vatnið
Danssýning
Kl. 13.00 í félagsheimilinu
Sýningartími: 25. mín
Í boði: Klofningur
Verkið fjallar um veruna Veru og tilraunir hennar og upplifanir í veðri og vindum. Hún rennur til í klakapolli, flýr undan rigningu, lendir í bæði stormi og snjókomu. Sýningin er 25 mínútur og eftir hana er áhorfendum boðið upp á svið til að skoða leikmyndina og hitta Veru.
Vera og vatnið var útnefnd Barnasýning ársins á Grímuverðlaunahátíð Sviðslistasambandsins 2016.
Flytjandi: Snædís Lilja Ingadóttir
Höfundar: Tinna Grétarsdóttir, Sólrún Sumarliðadóttir, Guðný Hrund Sigurðardóttir og Snædís Lilja Ingadóttir.
Danshöfundur: Tinna Grétarsdóttir
Tónskáld: Sólrún Sumarliðadóttir
Leikmyndahönnuður: Guðný Hrund Sigurðardóttir
Ebbusögur
barnaleikrit
Kl. 14.30 við félagsheimilið
Sýningartími: 25 mín
Í boði: Klofningur
Ebba er spaugileg og hress sögukona. Í fyrsta skipti segir sögur dagsins því þetta er einmitt frumsýning á nýju barnaleikrit. Þetta verður sko gaman.
Fimmþúsundkallinn
Kl: 16.00 Félagsheimilið
Sýningartími:
Í boði: Háskólasetur Vestfjarða
Hvað gerist ef ungur drengur fær skyndilega fimmþúsund krónur að gjöf frá fátækri fiskikonu að nafni Lúrdus ?
Höfundur/Leikari/Lýsing/Leikstjórn: Gunnar Smári Jóhannesson
Orðin
Tónleikhúsverk
Kl. 17.00 Félagsheimilið
Sýningartími: 40. mín.
Í boði: Landsbankinn
Orðin er tónleikhúsverk fyrir einn flytjanda, þ.e. verk á mörkum leiklistar og tónlistar sem hvorki lýtur lögmálum óperunnar eða söngleiksins. Verkið er fyrir rödd, víólu og rafhljóð, en er samt sem áður skrifað fyrir eina manneskju, Kristínu Þóru Haraldsdóttur. Kristín Þóra gerir allt sem gera þarf á sviðinu, hún syngur, talar, kveður, leikur, spilar á víólu og stýrir rafhljóðum.
Textinn er samansettur úr völdum ljóðum og ljóðabrotum úr ljóðabókinni Öll fallegu orðin eftir Lindu Vilhjálmsdóttur. Ljóðabókin Öll fallegu orðin lýsir hugarástandi konu sem syrgir látinn elskhuga sinn og finnst hún sitja eftir með ósögð orð.
Verkefnið var styrkt af Musica Nova, Nýsköpunarsjóði tónlistar árið 2014. Verkið hefur tvívegis verið flutt á Íslandi auk þess sem Kristín Þóra hefur flutt brot úr verkinu á tónleikaferðum sínum um Bandaríkin.
Flytjandi: Kristín Þóra Haraldsdóttir
Texti: Linda Vilhjálmsdóttir
Tónlist: Þórunn Gréta Sigurðardóttir
Kristín Ómarsdóttir
Upplestur
Kl. 19.00 í félagheimilinu
Lestursstund: 35 mín
Í boði: Vestfirska forlagið
Kristín Ómarsdóttir býr og starfar í Reykjavík. Hún er einstaklega fjölhæft skáld ritar ljóð, skáldsögur sem leikverk. Kristín hefur verið tilnefnd til fjölda verðlauna, má þar nefna Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 1999 fyrir skáldsöguna Elskan mín ég dey. Leikrit hennar, Ástarsaga 3 var tilnefnt til Leiklistarverðlauna Norðurlandaráðs árið 1998. Hún hlaut íslensku leiklistarverðlaunin Grímuna árið 2005 fyrir leikritið Segðu mér allt; bókmenntaverðlaun DV árið 1998 fyrir Elskan mín ég dey; Bókmenntaverðlaun íslenskra kvenna árið 2008 fyrir Sjáðu fegurðina þína; og ljóðverðlaunin Maístjarnan árið 2017 fyrir kóngulær í sýningargluggum.
Griðastaður
Leiksýning
Kl. 20.00 í félagsheimilinu
Sýningartími: 60 mín
Í boði: Íslandsbanki
Griðastaður er einleikur um dauðleikann, fjöldaframleiðslu húsgagna, Billy-hillur, bældar tilfinningar, mömmur, sænskar grænmetisbollur, fyrrverandi kærustur, krúttlegar skjaldbökur, einsemd, sniðugar kryddhillur, dauðann, Nockeby-sófa, lífið, sorgina og fleira. Allir deyja leikfélag þakkar Ikea kærlega fyrir sýndan stuðning.
Á sviði: Jörundur Ragnarsson
Handrit og leikstjórn: Matthías Tryggvi Haraldsson
Dramatúrgía: Eydís Rose Vilmundardóttir og Jökull Smári Jakobsson
Tónlist: Ingibjörg Ýr Skarphéðinsdóttir
Ómar Ragnarsson – Ómar á ljúfum og léttum nótum
Grín og glens
Kl. 21.30 í félagsheimilinu
Grínstund: 60 mín
Í boði: Landsbankinn
Dagskrá í tali og tónum með uppistandi, eftirhermum og fjölbreyttum söngvum, fjöldasöng og ljóðalestri, meðal annars af safnplötunni „Hjarta landsins,- náttúran og þjóðin."
Siggi Björns
Tónleikar
Kl. 23.00 í félagsheimilinu
Tónlistartími: 55 mín
Í boði: Arnarlax
Siggi Björns er einn af kraftmestu skemmtikröftum sem þjóðin á og Evrópusambandið varðveitir fyrir okkur.
Hann hefur spilað og sungið fyrir fólk um allan heim. Bísast með gítarinn um allar byggðar heimsálfur og látið þjakað fólk og þjáð í afkimum Asíu geisla af gleði. Hann hefur líka fengið stolt og gleðiríkt fólk í Reykhólasveit til að fella tár yfir tónum.
Siggi er Flateyringur sem samið hefur fjölda laga og fjalla textar hans gjarnan um þorpið og lífið í þorpinu sem var.
Hann mun spila eigin lög og segja sögur um lögin á milli. Þar er af nógu að taka því Siggi er sagnabrunnur sem fer vel með efnið og glæðir það meira lífi en norðaustan ágjöfin getur gert...
Guðmóðirin
Einleikur
Kl. 24.15 í félagsheimilinu
Sýningartími: 60 mín
Í boði: Múr og stimplun
Guðmóðirin fjallar um Lóu 26 ára, einhleypa konu, sem gerir fátt annað en að koma sér í vandræði á meðan hún reynir að halda sársaukanum, sem hún hefur burðast með í mörg ár, niðri.
Leikari: Ebba Sig
Höfundar: Ebba Sig, Gunnhildur Þorkelsdóttir
Leikstjórn: Gunnhildur Þorkelsdóttir
AÐGANGUR AÐ ÖLLUM VIÐBURÐUM ER ÓKEYPIS ÞÖKK SÉ OKKAR EINSTÖKU STYRKTARAÐILUM
Uppbyggingarsjóður Vestfjarða og Ísafjarðarbær styrkja Act alone árlega