Kómedíuleikhúsið er fyrsta og eina atvinnuleikhúsið á Vestfjörðum, stofnað árið 1997. Leikhúsið hefur sett á svið yfir nærri 50 leikverk sem eiga það flest sameiginlegt að tengjast sögu Vestfjarða á einn eða annan hátt. Kómedíuleikhúsið hefur einbeitt sér að einleikjum sem hafa vakið mikla athygli bæði hér heima og erlendis. Fyrsti einleikurinn var Leikur án orða, 2001, eftir Samuel Beckett en eftir það hafa allir einleikirnir komið úr smiðju leikhússins. Af þeim má nefna Muggur, 2002, Steinn Steinarr, 2003, verðlaunaleikinn Gísli Súrsson, 2005, Pétur og Einar, 2008, Bjarni á Fönix, 2010, Jón Sigurðsson strákur að vestan, 2011, Fjalla-Eyvindur, 2013, Grettir, 2015, Gísli á Uppsölum, 2017, og Ariasman, 2024. Að lokum er gaman að geta þess að Kómedíuleikhúsið hefur starfað talsvert í útgáfu og gefið út bæði yfir á þriðja tug verka.
Kómedíuleikhúsið er leikhús á hjólum og ferðast um land allt með sýningar sínar.
English:
The Comedytheatre of the Westfjords, Iceland
The Comedytheatre is the first and only professional theatre in the Westfjords, founded in 1997. The theatre has hosted over 40 plays, which usually reflect the history of the Westfjords in one way or another.
The Comedytheatre has focused on solo performances that have attracted considerable attention, both locally and abroad. The first solo play was Act Without Words by Samuel Beckett, which was staged in 2001. Since then, all our productions have been originals. They include works like Muggur (2002) and Steinn Steinarr (2003) both performed in The City Theatre of Reykjavík and in the Westfjords. Other solo plays include Gísli Súrsson (2005), Pétur and Einar (2008), Jón Sigurðsson – Boy from the West (2011), Eyvindur of the Mountains(2013), Grettir (2015), Gísli from Uppsalir (2017) and Ariasman (2024).